bob

Home

Auglżsing

Frišrik Helgason

Er: nemi ķ SAE London.
Netfang: peacedust@gmail.com
MSN: bobrokk@hotmail.com
Sķmi: (0044)7794145157
Heimilisfang: 251 Salisbury Walk, London, N19 5DY, United Kingdom

Bśmm tjiss..

26. janśar 2007 klukkan 00:41

Jæja..

Við erum búin að finna íbúð.. Hún er tiltörulega rúmgóð(1 svefnherbergi, stofa, eldhús og bað) á góðum stað(hjá Islington and Highbury station). Hún er nú ekki ókeypis frekar en neitt hérna úti, en ég held samt að við höfu gert fínan díl.. Nú geta allir komið í heimsókn því að það er svefnsófi í stofunni..

Ble í bili.


Frišrik Helgason
Almennt | 15 athugasemdir

Holland

22. janśar 2007 klukkan 17:58

Jæja, núna er ég bara að fara að skella mér til Hollands, nánar tiltekið til Amsterdam. Frænka hennar Droplaugar býr þar og fáum við að gista hjá henni. Við förum 9. febrúar og verðum til 12. Flug frá Bretlandi eru svo fáránlega ódýr að það er um að gera að nýta það sem mest. Við náðum reyndar ekki allra ódýrasta fluginu í þetta skiptið en þar sem að það var ekki nema um 3. vikna fyrirvari þá var nú ekki við því að búast, en ég tel 13 þúsund krónur báðar leiðir seint dýrt..

Ég og Droplaug fórum út að borða á grískan veitigarstað í gær, sem væri ekki frásögufærandi nema það að það voru 3 arkítektar á borðinu við hliðiná okkur, einn frá grikklandi og 2 frá portúgal. Þeir voru svaka spenntir fyrir Íslandi og fengu hjá okkkur emailin. Og þegar að ég kíkti á póstinn min í morgun var email frá einum þeirra. Rosa hress gaur sko, ég kann að meta svona "líbó" fólk. Það eru ekki margir íslendingar sem myndu gera svona..

Ég var orðinn svo buxnalaus eitthvað að ég skellti mér í bæinn til að fjárfesta í einum slíkum. Ég fór í HogM þar sem að þeir eru tiltörulega billegir og viti menn rakst ég ekki á þessar fínu buxur á aðeins 2600 kr. Ekki nóg eð að þær væru ódýrar þá voru þær að lúkka kúl, þetta eru svona húsvarðastyle buxur.. Ég er einmitt að spá í að koma því lúkki í tísku, eina sem mig vantar núna er svona lyklakyppa sem að maður getur tosað út og rúllast aftur inn(þið vitið hvað ég meina)..

En er farinn að finna íbúð..
blebleble
Frišrik Helgason
4 athugasemdir

Prófiš bśiš.

15. janśar 2007 klukkan 20:33
Jeeeeee..

Það var búið að hræða okur svo mikið með að þetta próf sem var á fimmtudaginn væri svo mikil stærðfræði, þannig að ég lagði aðal áherslu á hana, reiknaði svo sannarlega af mér rassgatið. En svo var bara lítil sem engin stærðfræði, og ég varla búinn að lesa yfir hinar glósurnar.. En ég held að ég hafi nú alveg staðið mig ágætlega, ég er allavegana með stærðfræðina nokkuð á hreinu..

Annars er það að frétta að Droplaug er komin hingað til mín og verðum við hérna í "greninu" þangað til að við finnum eittvað fínt en ódýrt til að leigja.

En jæja ætla að fá mér kínamat, og hlusta á Beastie Boys...
Frišrik Helgason
Almennt | 3 athugasemdir

Uk

09. janśar 2007 klukkan 21:50
Eg er kominn aftur til Bretlands.
Eg kom thann 3. jan og byrjadi skolinn strax, hann byrjadi meira ad segja 2. jan, vodalega stressadir thessir bretar.
Thad var sko eginn timi til ad tjilla eftir heimkomu thvi ad thad er prof thann 11. jan, semsagt naesta fimmtudag. Thetta er stort og mikilvaegt prof og er eg buinn ad vera ad lesa a fullu undanfarna daga..

Jolafriid heima a Islandi var frabaert, eg gat gert flest thad sem eg aetladfi mer ad ger, vann i BT, for i sveitina og tjilladi grimmt.. Meira getur madur ekki bedid um held eg.

Eg eignadist meira ad segja rafmagnstrommusett, en their sem mig best thekkja vita ad eg er buinn ad hafa augun a einu sliku i morg ar.
Eg fekk mer Yamaha DTXpress III, svona frekar basic sett en samt mjog skemmtilegt.

En eg er farinn ad laera aftur, ble..

p.s. eg reyni ad blogga sem mest, en thad er svolitid erfitt thar sem ad eg er tolvulaus i augnablikinu. Og netkaffitiminn fer mestur i eitthvad annad merkilegra.
Frišrik Helgason
Almennt | 1 athugasemd

Kem heim į morgun..

15. desember 2006 klukkan 20:26
Blé..

Frišrik Helgason
2 athugasemdir

I got robbed by the coke machine

08. desember 2006 klukkan 20:10

Jæja, ég var "rændur" í fyrsta og vonandi seinasta skipti í Bretlandi í gær.
Þetta var nú ekkert rosalegt, ég skildi bara eftir dótið mitt á bar þegar að ég skrapp á barinn, sat samnt nálægt barnum og var að fylgjast með dótinu, en barþjónninn var svo lengi að skoða peninginn minn(hann hefur haldið að hann væri falsaður eða eitthvað)að ég fór að fylgjast meira með honum. Ég leit ekki af borðinu nema í nokkrar sek, en það var nóg fyrir þjófinn.. Hann náði svosem ekki mikklu, bara 5 pundum og kortunum mínum, sem ég lét loka strax..
En það er svona, maður verður að passa sig betur..

Það var samt cool hve vel barþjónarnir brugðust við, þeir stukku út og reyndu að finna gaurinn... Og svo er svona talstöðvar samband á milli allra baranna í kring og þar var auglýst eftir gaurnum.. Ef að svona gerðist á Kaffibarnum þá er ég ekki viss um að barþjónarnir myndu kippa sér eitthvað upp við þetta.



Frišrik Helgason
5 athugasemdir

Óvešur ķ London.

08. desember 2006 klukkan 01:00

Þessi mynd er tekin við Chamberlayne Road í norð-vestur hluta London í dag.

Það var óveður í London í morgun, hvirfilbylur fór í gegnum norð-vestur hluta borgarinnar.
Eftir að ég best veit slösuðust 6 manns. Ekkert alvarlega held ég.

Þegar að ég var skólanum í morgun þá heyrði ég svaka læti og það var eins og einni risastórri eldingu hefði lostið niður einhverstaðar í fjarska, svo þegar að ég kom heim sá ég þetta í fréttunum.. Það er nú fínt veður þar sem ég er staddur, en var frekar slæmt í nótt..


Frišrik Helgason
Almennt | 1 athugasemd

Wales.

07. desember 2006 klukkan 02:59

Jæja, ég fór í heimsókn til Völu um helgina, hún býr í Salisbury sem er rétt um klukkutími og tuttugumínótur frá London.
Það var mjög gaman, hún býr í rosa flottri íbúð, góð tilbreyting að fara úr rottuholunni minni í svona fína íbúð.
Vinur hennar hann Blue(jamm hann heitir það) frá U.S and A var líka í heimsókn, og var hann með bílaleigubíl þannig að við notuðum helgina í að skoða okkur um.. Við fórum til Bournmouth á laugardeginum, það var gaman að fara þangað því að ég var þar í um mánuð í enskuskóla fyrir einhverjum árum. Svo á sunnudeginum fórum við Wales, það var mjög gaman að fara þangað. Við skoðuðum höfuðborgina, Cardiff, mest.


Svo á mánudeginum fórum ég og Blue til London, við komum aðeins við í Oxford á leiðinni.
Blue gistir núna hérna hjá okkur þar sem að eitt herbergi hjá okkur er laust fram að áramótum.
Ég hef reyndar ekkert séð né heyrt af Blue síðan á mánudagsnótt.. En hann hlítur að skila sér, hann kann að bjarga sér, er búinn að ferðast mikið og býr í new York.

Hér eru nokkrar myndir frá ferðinni, Það eru fleiri undir myndir hér að ofan.



The Stonehenge, ég er ekki viss um að þetta hafi verið 6 pundana virði..




É og Vala í Cardiff.




Vala og Blue í parísarhjóli í jólalandi í Cardiff.


En er farinn að kíkja á verkefni í skólanum.

Frišrik Helgason
1 athugasemd

Sķmi.

01. desember 2006 klukkan 20:28
Jæja..

Peter Harper bróðir Ben Harpers er með kosningu á síðunni sinni um tónlistarmann mánaðarins og er sími með í þeirri kosningu.

Fyrir þá sem ekki vita hvað Sími er þá er það eitt merkasta band Íslandssögunar, engin veit hvað varð um bandið né hvar meðlimir bandsins eru niðurkomnir núna..

En endilega kjósið þá hér:
http://www.peterharperart.com/?page=yourmusic

Hér getiði svo skoðað Sími nánar:
http://www.myspace.com/hojkursimi

Endilega kjósið..

PeAcE
Frišrik Helgason
3 athugasemdir

Myndband.

30. nóvember 2006 klukkan 21:36

Bjarni var að ljúka við myndband við lagið "Less then Three" fyrir okkur í bob.
Við eru rosalega ánægðir með útkomuna og á Bjarni mikið hrós skilið fyrir þetta áhugaverða og æðislega myndband.




Ég rakst líka á gamla myndbandið sem hann gerði fyrir okkur við lagið Druggy sex & Sexy drugs.
Það er fyndið að skoða þetta, orðið mjög gamallt sko.




Það er líka hægt að sjá þessi myndbönd í betri upplausn og fleiri verk eftir Bjarna á www.nothing.is.

Annars er lítð að frétt, er að fara á fyrirlestur upp í skóla á eftir og ætla svo að klára verkefnið mitt í kvöld..
Svo á morgun fer ég að heimsækja Völu sem að ég hef ekki hitt í ár og daga. Hún býr í Salisbury, sem er í svona klukkutíma fjarlægð frá London..


Blezzz.
Frišrik Helgason
3 athugasemdir